Mat á skólastarfi
Mat á skólastarfi er ein forsenda þess að skólar geti mætt þeim mörgu og margvíslegu breytingum sem ytra umhverfi kallar á. Sjálfsmat skóla felst í því að afla með skipulögðum hætti upplýsinga um ákveðna þætti skólastarfsins. Gæði starfsins eru síðan metin með því að bera niðurstöður saman við markmið eða viðmið. Á grundvelli mats eru teknar ákvarðanir um breytingar til að bæta árangur, sett markmið og framkvæmdaráætlun gerð til þess. Sjálfsmatsteymi skólans hefur umsjón með vinnu í tengslum við sjálfsmat og gerð sjálfsmatsskýrslu og umbótaáætlunar. Sjálfsmatið felur í sér meðal annars umbótaráætlun og áætlun um innra mat.
- Vera stjórnendum til halds og traust við innra mat skólans og koma með tillögur til stjórnendahópsins.
- Sjá til þess að matsáætlun sé fylgt og uppfæra hana.
- Fara yfir gögn, s.s. kannanir og skimanir og koma með tillögur að umbótum.
- Yfirfara umbótaáætlun að vori og móta tillögur þar sem fram kemur hvaða umbóta- og þróunarverkefnum er lokið, hvaða verkefni ættu halda áfram og hvaða ný verkefni ætti að taka upp.
Hér er Umbótaáætlun Austurbæjarskóla 2018 sem var unnin í kjölfar ytra mats 2017-2018
2019: Hér má finna niðurstöður foreldraþings 2019, Foreldraþing_Austó_2019_úrvinnsla