Félagsmiðstöðin 100og1 er ein af fimm félagsmiðstöðvum í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ sem starfrækt er af Tjörninni, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10.bekk.
Félagsmiðstöðin vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur Austurbæjarskóla. Einnig er áhersla lögð á samvinnu við foreldra/forráðamenn í hverfinu. Félagsmiðstöðin er opin öllum þeim sem hafa áhuga á því að kynna sér starfsemi okkar.
Friðmey er forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar og með henni starfa aðstoðarforstöðumaður og átta frístundaleiðbeinendur.

1. - 4. bekkur
Frístundastarf í Draumalandi
Draumaland er frístundaheimili Austurbæjarskóla. Draumaland tekur á móti nemendum í 1. – 4. bekk að loknum skóladegi, sjá nánar á kampur.is/draumaland.