Heimsókn í Austurbæjarskóla
Forráðamenn nemenda eru að sjálfsögðu velkomnir í heimsókn í skólann á hefðbundnum skóladögum. Hins vegar er þess vænst að haft sé samband við umsjónarkennara viðkomandi barna daginn áður.
Forráðamönnum og öðrum utanaðkomandi einstaklingum sem erindi eiga í skólann af ýmsum ástæðum, ber að gera vart við sig á skrifstofu skólans. Heimsóknir til nemenda á skólatíma eru háðar leyfi skólastjóra.
Þeim utanaðkomandi einstaklingum sem sitja kennslustundir ber að undirrita yfirlýsingu um trúnað og þagnarskyldu.