|
Skólaráð Austurbæjarskóla 2009 - 2010 skipa:
Guðmundur Sighvatsson, skólastjóri Pétur Hafþór Jónsson, tónmenntakennari Sólveig Magnúsdóttir, nýbúakennari Inga Lára Birgisdóttir, bókasafnsfræðingur Hlín Íris Arnþórsdóttir, foreldri Kristín Ólafsdóttir, foreldri Iðunn Jónsdóttir, nemandi í 9. - EA Sigurður Óskarsson, nemandi í 10. - SR Þórunn Vignisdóttir, verkefnastjóri hjá 101
Skólaráð… • er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. • tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. • fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. • skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. • fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Skólaráð fjallar ekki um önnur málefni viðkomandi skóla en þau sem talin eru upp hér að ofan, nema skólanefnd (menntaráð) feli einstökum skólaráðum ákveðið verkefni þessum til viðbótar. Skólaráð fjallar ekki um málefni einstaklinga svo sem nemenda og kennara, heldur fylgist almennt með öryggi og aðbúnaði í skólanum og almennri velferð nemenda.
Skólaráð er skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Ráðið skipa: - skólastjóri sem stýrir ráðinu og ber ábyrgð á stofnun þess -2 fulltrúar kennara -1 fulltrúi annarra starfsmanna -2 fulltrúar nemenda -2 fulltrúar foreldra Skólaráð velur að auki 1 fulltrúa grenndarsamfélagsins til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra.
Fundargerðir: Fyrsti fundur haldinn 29. janúar 2009. Annar fundur haldinn 9. mars 2009. Þriðji fundur haldinn 16. apríl 2009. Fjórði fundur haldinn 26. nóvember 2009. Fimmti fundur haldinn 7. janúar 2010. Sjötti fundur haldinn 4. febrúar 2010. Sjöundi fundur haldinn 11. mars 2010 Áttundi fundur haldinn 15. apríl 2010.
|
|
Síðast uppfærsla: föstudagur, 07 maí 2010 15:12 |