Í skólanum hefur verið starfrækt nýbúadeild síðan haustið l994. Deildin er fyrir nemendur sem eru nýkomnir til landsins og hafa annað móðurmál en íslensku og einnig íslenska nemendur sem hafa dvalið langtímum erlendis. Nemendur koma úr Reykjavík og eru í 2.-10. bekk. Þeir tilheyra allir almennum bekk og hafa sinn umsjónarkennara.
Nýbúadeildinni er skipt í eldri og yngri deild. Í eldri deild eru nemendur úr 7.- 10. bekk. Þeir fylgja almennum bekk í stærðfræði, ensku, verk- og listgreinum en læra íslensku sem annað tungumál í nýbúadeild þegar bekkurinn þeirra er í íslensku eða samfélagsgreinum. Námið er einstaklingsmiðað og kennt í litlum hópum. Eftir því sem nemendur öðlast meiri færni í íslensku, sækja þeir fleiri bóklega tíma í almennum bekk. Nemendur fá aðstoð í nýbúadeildinni eins lengi og þörf krefur en þess er ávallt gætt að þeir séu eins mikið með almennum bekk og framast er unnt. Í nýbúadeildinni er einnig veitt aðstoð í stærðfræði, samfélagsgreinum og ensku, ef þörf krefur, og þá í samstarfi við bekkjarkennara. Í yngri deild eru nemendur úr 2.- 6. bekk. Þeir læra íslensku sem annað tungumál í þeim kennslustundum sem nýtast þeim ekki í almennum bekk vegna tungumálaerfiðleika. Einnig er veitt aðstoð við stærðfræði, samfélagsgreinar og lestrarkennslu ef þörf krekur og þá í samráði við bekkjarkennara.
Viðmiðunartímafjöldi nýkominna erlendra nemenda í móttökudeild nýbúa:
Unglingadeild: 16 - 20 kennslustundir á viku.
Miðstig: 12 - 20 kennslustundir á viku
Yngsta stig: 5 - 10 kennslustundir á viku
Öllum nemendum nýbúadeildar býðst aðstoð við heimanám 1 kennslustund á dag eftir að skóla lýkur. Kennarar deildarinnar sjá um heimanámsaðstoðina.
|
|
Síðast uppfærsla: föstudagur, 06 febrúar 2009 11:14 |