
| Nemendaverndarráð |
|
|
|
Hlutverk nemendaverndarráðs er að fjalla um vandamál einstakra nemenda sem ekki hefur tekist að leysa eftir hefðbundnum verkferlum innan skólans. Nemendaverndarráð á einnig að stuðla að jákvæðu námsumhverfi fyrir nemendur og huga að alhliða velferð þeirra. Fastur fundatími nemendaverndarráðs er alla fimmtudaga kl. 9:30 – 10:30 á starfstíma skólans. Í nemendaverndarráði sitja aðstoðarskólastjóri sem stýrir fundunum, deildarstjórar, námsráðgjafi, skólasálfræðingur og skólahjúkrunarfræðingur. |
| Síðast uppfærsla: mánudagur, 12 október 2009 14:40 |