
| Ráðgjafarnefnd |
|
|
|
Ráðgjafarnefnd Austurbæjarskóla skólaárið 2009-20010 Hlutverk ráðgjafarnefndar: Ráðgjafarnefndinni er ætlað að sinna yngsta-, mið- og unglingastigi. Ráðgjafarnefnd er annað skrefið í vinnuferli skólans um lausn mála sem varða námsvanda nemenda, hegðun, félagslegan vanda, tilfinningavanda, geðrænan vanda, og skólasókn. Umsjónarkennari, foreldrar og starfsmenn skólans geta í samvinnu við ráðgjafarnefnd leitað leiða og úrræða til lausnar vandans. Markmið: Markmið með ráðgjöf nefndarinnar er að leysa mál þannig að nemandi geti haldið áfram árangursríku námi í getublönduðum bekk. Nefndinni er líka ætlað að finna úrræði ef lausnir í almennum bekk eru fullreyndar. Ráðgjafarnefnd leitast við að kynna nýjungar í kennsluháttum og vinnubrögðum og að koma með tillögur um símenntun. Aðgengi að ráðgjafarnefnd: Hægt er að leita persónulega til þeirra sem sitja í nefndinni. Eyðublað með tilvísun til ráðgjafarnefndarinnar er hjá ritara skólans. Einnig er hægt að nálgast það á sameignarsvæði kennara. Mikilvægt er að öllum beiðnum til nefndarinnar fylgi skilmerkilegar upplýsingar um eðli vandans og þær leiðir sem reyndar hafa verið til úrlausnar. Nefndin boðar á fundi sína þá sem hún telur eiga erindi þangað hverju sinni. |
| Síðast uppfærsla: mánudagur, 12 október 2009 14:45 |