gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Íslenska Prenta Senda tengil
Fjölmenningarleg kennsla
Fjölmenningarleg kennsla er uppeldis- og kennslustefna sem byrjað var að þróa í Evrópu á áttunda áratugnum. Fram til þess tíma hafði verið lögð megin áhersla á svokallaða innflytjendafræðslu. Sú kennslustefna lagði áherslu á að börn innflytjenda samlöguðust því samfélagi sem þau fluttu til og legðu á hilluna allt sem tilheyrði upprunamenningu þeirra. Þar með talið móðurmálið.
Þessar aðferðir gáfust illa og smám saman sáu menn nauðsyn þess að allir samlöguðust hinu breytta formi samfélagsins og að fjölbreytileiki einkenndist af fleiru en menningu.
Fjölmenningarleg kennsla er ennþá í stöðugri þróun og áherslurnar hafa breyst með aukinni reynslu. Nú er áherslan lögð á sjálfsagðan fjölbreytileika fólks. Í öllum bekkjum er margskonar fjölbreytileiki til staðar. Börn eru af ólíku kyni, koma úr ólíkum fjölskyldum, þau hafa ólík viðhorf og reynslu að baki, mismunandi áhugamál og mismunandi hæfileika.
Ólíkur uppruni er aðeins einn þáttur fjölbreytileikans. Markmið fjölmenningarlegrar kennslu er að nemendur læri að virða þennan fjölbreytileika og að nýta hann. Fjölmenningarkennsla er ekki viðbótarfag heldur liggur hún þvert í gegnum öll svið kennslunnar á öllum aldursstigum.
Fjölmenningarleg kennsla leitast við að kenna börnum að takast á við fjölbreytileikann í umhverfi sínu, virða hann og gera sér grein fyrir gagnsemi hans.

Fjölmenningarleg kennsla gengur út frá 6 megin lögmálum: 
Að nemendur:
· Læri að takast á við fjölbreytileikann
· Læri samkennd og samvinnu
· Læri samstöðu
· Læri að þekkja og virða aðra menningu en sína
· Skilji þröngsýni þjóðernishyggju
· Skilji þröngsýni og hættur fordóma og rasisma

Með kennsluaðferðum, sem leggja megin áherslu á samvinnu og samskipti, er börnunum kennt að með samvinnu áorka þau meiru og árangurinn verður betri heldur en þegar þau vinna hvert í sínu horni. Börnin eru því þjálfuð í samskiptahæfni þar sem aðal áhersla er lögð á að hver og einn einstaklingur hefur eitthvað til brunns að bera sem nýtist hópnum til að leysa sameiginleg verkefni.

Ef reynt er að draga saman á einfaldan hátt hvað fjölmenningarleg kennsla þýðir mætti nefna eftirfarandi þætti:
· er ekki ákveðið fag eða kennslugrein
· snýr að allri kennslu og öllu starfi innan skólans
· er eins og rauður þráður í gegnum öll fög á öllum aldursstigum
· gerir ráð fyrir gagnkvæmum lærdómi nemenda
· gerir ráð fyrir samvinnunámi
· gerir ráð fyrir að allir geti gert eitthvað - enginn geti gert allt.

Verkefnið krefst þess af kennaranum:
· Að hann gangi ekki aðeins út frá einni menningu
· Að hann sé á varðbergi gagnvart kynþáttafordómum
· Að hann sé vakandi fyrir staðalmyndum
· Að hann varist upphafningu eigin menningar á kostnað annarrar
· Að hann leggi áherslu á mikilvægi umburðarlyndis og samkenndar
· Að hann sé tilbúinn til að tileinka sér breyttar kennsluaðferðir þar sem mikil áhersla er lögð á samvinnu og samskipti nemenda

Kostir fjölmenningarlegrar kennslu með samvinnunám sem kennsluaðferð eru í stuttu máli:
· Betri árangur í námsefninu
· Nemendur læra að takast á við fjölbreytileikann í umhverfi sínu almennt
· Nemendur læra að takast á við menningarlegan fjölbreytileika í samfélaginu
Síðast uppfærsla: föstudagur, 05 september 2008 04:15
 
midlogo