|
Fjölmenningarleg skólastefna |
|
|
|
Hugmyndafræði: Sérhvert skólasamfélag er fjölmenningarlegt og fjölbreytilegt. Allir hafa jafnan rétt í skólasamfélaginu. Allir skulu hafa fullan aðgang að námsferlinu. Allir eru góðir í einhverju - enginn er góður í öllu. Við erum sterkari þegar við vinnum saman. Allir eiga að hjálpast að. Allir eiga rétt á að hafa skoðun.
Stefna: Austurbæjarskóli er fjölmenningarlegur skóli. Áhersla skal lögð á sjálfsagðan fjölbreytileika nemenda. Erlendur nemandi er aðeins einn þáttur fjölbreytileikans. Fordómar eru ekki liðnir í neinni mynd. Áhersla skal lögð á virkar kennsluaðferðir. Nemendur læri hver af öðrum ekki hver um annan.
Markmið skólans er að nemendur læri: Að virða fjölbreytileika. Að nýta hann á jákvæðan hátt. Að gera sér grein fyrir kostum fjölbreytileika.
Í skólanum er lögð áhersla á ákveðin gildi sem stuðla að: Sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum. Að jafna stöðu nemenda. Virkum kennsluaðferðum t.d. CLIM. Samhjálp nemenda.
|
|
Síðast uppfærsla: mánudagur, 17 nóvember 2008 09:56 |