
| Íslenska sem annað mál |
|
|
|
Íslenska sem annað tungumál Námsgreinin íslenska sem annað tungumál er meira en tungumálakennsla. Saman fara markmið þar sem leitast er við að þjálfa erlenda nemendur í íslensku máli og menningarfærni, viðhalda og þróa þekkingargrunn og læsi, örva námsgetu og námstækni, ásamt því að stuðla að félagslegri velllíðan nemandans (Aðalnámskrá gunnskóla, 2006). Þegar kenna á íslensku sem annað mál þurfa kennarar að huga að mörgum þáttum. Þeir þurfa að vera markvissir í kennsluháttum sínum til þess að stuðla að aukningu á orðaforða og skilningi. Einnig þarf að huga að félagslegum samskiptum nemenda við skólafélaga sína og því að nemendur verði ekki á eftir jafnöldrum sínum í hinum ýmsu námsgreinum sem kenndar eru. Kennsluaðferðir sem byggja á virkni og samvinnu nemenda eru heppilegar því þær stuðla að virkni og samskiptum við skólafélaga ásamt því að hafa innbyggt stoðkerfi. Það er einnig nauðsynlegt að nýta sjónrænar stoðir eins og framast er unnt í kennslunni til þess að auka skilning og orðaforða hinna erlendu nemenda. Í Austurbæjarskóla fá nýkomnir erlendir nemendur kennslu í íslensku sem öðru tungumáli í móttökudeild skólans auk þess að vera þátttakendur í almennum bekk. Stundafjöldi fer eftir aldri nemenda og fá nýkomnir erlendir unglingar allt að 15-16 kennslustundum á viku í deildinni.
Kennsluaðferðir og nálganir: Uppbygging orðaforða – byrjað á nánasta umhverfi Sjónrænar stoðir – ríkt myndefni við texta Sameiginlegur sögulestur Sýnikennsla Leikræn tjáning kennarans Samræður milli kennara og nemenda Gagnvirkur lestur Orðaveggur – lykilorð skrifuð á töflu/miða og unnið með þau Samvinnunám Paravinna Aðalatriði skráð sérstaklega Aðstoð við að draga aðalatriði út úr texta Aðlaga námsefni
Námsmat í íslensku sem öðru tungumáli: Nemendur taka stigspróf í íslensku sem öðru tungumáli og eru þau tilgreind sérstaklega: Íslenska sem annað mál 1, 2, 3, 4 eða 5, þar sem íslenska fyrir annað mál 1 er fyrir þá sem styst eru komnir í greininni. |
| Síðast uppfærsla: sunnudagur, 22 nóvember 2009 12:12 |