
| Innkaup og upplýsingar fyrir 1. bekk |
|
|
|
Kæru foreldrar. Eins og undanfarin ár á yngsta stigi önnumst við innkaup á öllum skólavörum fyrir bekkina þ.e. ritföngum, bókum, möppum ofl. Innheimtar verða 3.500 kr. í foreldraviðtölum þann 23.-24. ágúst nk. Nemendur koma bara með skólatösku, hollt nesti, sundföt og íþróttafatnað sem við á. Stúlkur eru í sundi fyrir áramót og drengir eftir áramót. Útiíþróttir eru til 18. september. Mikilvægt er að merkja allan fatnað og annað sem þið viljið að skili sér aftur heim. Umsjónarkennarar boða ykkur í viðtal símleiðis 17. og 18. ágúst. Með bestu kveðju, Bryndís og Ólína.
|
| Síðast uppfærsla: mánudagur, 16 ágúst 2010 15:00 |