Í skólanum er starfandi námsráðgjafi, Berglind S. Heiðarsdóttir, sem er í fullu starfi. Námsráðgjafi er við alla daga vikunnar. Ef foreldrar, nemendur eða kennarar vilja panta tíma þá er hægt að hringja í síma skólans 561-2680 eða senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
.
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Námsráðgjafi liðsinnir nemendum í málum er snerta skólavist þeirra og veitir þeim ráðgjöf um hvernig þeir geti fengið úrlausn sinna mála. Námsráðgjafi er málsvari nemenda og trúnaðarmaður þeirra. Helstu verkefni námsráðgjafa eru eftirfarandi:
- Leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi.
- Veitir nemendum ráðgjöf í einkamálum þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi
- Veitir nemendum ráðgjöf um náms- og starfsval og fræðir þá um nám, störf og atvinnulíf.
- Skipuleggur heimsóknir nemenda í 10. bekk í framhaldsskólana.
- Skipuleggur starfskynningar nemenda 10. bekkjar í fyrirtæki.
- Aðstoðar nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og að meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.
- Sinnir fyrirbyggjandi starfi, t.d. vörnum gegn vímuefnum, einelti og ofbeldi í samstarfi við aðra starfsmenn skólans.
- Veitir foreldrum ráð varðandi nám og hegðun barna þeirra.
- Situr fundi Nemendaverndarráðs.
- Hefur samband og samráð við sérfræðinga innan og utan skólans og vísar málum til þeirra eftir ástæðum.
Námsráðgjafi vinnur í samstarfi við foreldra eftir því sem við á. Einnig hefur hann samráð og samstarf við aðra sérfræðinga innan eða utan skólans, s.s. sérkennara, hjúkrunarfræðing, skólasálfræðing og vísar málum einstaklinga til þeirra í samráði við nemendur og foreldra. Námsráðgjafi er bundinn trúnaði varðandi málefni sem hann vinnur með.
|
|
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 06 nóvember 2008 09:11 |