gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Sálfræðingur Prenta Senda tengil
Sálfræðiþjónusta skólans er rekin af Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21 hér í borg. Símanúmerið þar er 411-1600. Sálfræðingur skólans er Hildur Jónsdóttir og veitir hún einnig Háteigsskóla þjónustu. Sálfræðingur vinnur með nemendum sem eiga í sálrænum og félagslegum erfiðleikum þar sem þessir erfiðleikar hafa áhrif á nám og aðlögun í skóla. Inngrip sálfræðings felur m.a. í sér athugun og mat á þroska, hegðun og líðan nemandans samkvæmt niðurstöðum úr viðtölum, sálfræðilegum prófum, bekkjar- og atferlisathugunum. Sálfræðingur gerir tillögur til úrbóta og tekur þátt í gerð áætlana um aðstoð við einstaka nemendur í samvinnu við fulltrúa í nemendaverndarráði, kennara og foreldra. Sálfræðingur getur boðið upp á skammtímameðferð í einstaka tilfellum.
Oftast eru það kennarar og/eða foreldrar barns sem leita eftir aðstoð sálfræðings. Skilyrði fyrir því að sálfræðingur taki mál til vinnslu er að umbeðnar upplýsingar á tilvísunarblaði séu veittar og að skriflegt samþykki foreldra sé fyrir hendi. Tilvísunareyðublað fæst í skólanum. Æskilegt er að foreldrar hafi samráð við kennarann þegar þeir hyggjast leita eftir sálfræðiaðstoð fyrir barn sitt. Ákvörðun um forgangsröðun mála er tekin af nemendaverndarráði skólans sem hittist vikulega.
Hægt er að ná í sálfræðing í skólanum á miðvikudögum og fimmtudögum. Viðtalstími er eftir samkomulagi.
Einnig er hægt að ná í sálfræðinginn í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 19 júní 2008 14:30
 
midlogo