|
Heilsugæsla í Austurbæjarskóla heyrir undir Heilsugæslustöðina í Miðbæ. Heilsugæsla skólabarna er markvisst framhald af ung- og smábarnavernd og á að efla heilbrigði barns og stuðla að vellíðan þess í samvinnu við foreldra.
Við upphaf skólagöngu fær skólahjúkrunarfræðingur heilbrigðisskýrslu barnsins frá þeirri heilsugæslustöð sem hefur þjónað því. Þegar barn flytur á milli skóla fer skýrsla barnsins til viðkomandi skólahjúkrunarfræðings eða heilsugæslustöðvar. Tekið skal fram að farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og að skýrslurnar eru geymdar í læstum skjalaskápum.
Skólahjúkrunarfræðingur skólans er Sigrún Björnsdóttir.
Athugið að skólahjúkrunarfræðingur er starfsmaður fyrir alla nemendur skólans.
Í stórum dráttum er heilsugæslunni þannig háttað:
1. bekkur (6 ára) Nemendur eru hæðar- og þyngdarmældir, sjón- og heyrnarprófaðir. Þeir sem ekki hafa farið í fimm ára skoðun á heilsugæslustöð fá endurbólusetningu gegn barnaveiki/stífkrampa og kíkhósta (Í einni sprautu).
4. bekkur (9 ára) Nemendur eru hæðar-, þyngdarmældir og sjónprófaðir.
6. bekkur (11 ára) Hjúkrunarfræðingur veitir fræðslu um kynþroska.
7. bekkur (12 ára) Nemendur eru hæðar-, þyngdarmældir og sjónprófaðir ásamt athugun á litaskyni. Endurbólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (í einni sprautu).
Fylgst er með nemendum í öðrum árgöngum eftir þörfum.
Fræðsla/heilbrigðishvatning/forvarnir Skólaheilsugæslan sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Öll tækifæri sem gefast eru nýtt til að fræða nemendur og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilsu. Foreldrar eru hvattir til að leita eftir ráðgjöf hjúkrunarfræðings varðandi vellíðan, andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
Tannvernd
Flúorskolun fer fram í skólanum hjá 1., 7. og 10. bekk á tveggja mánaða fresti þrjá daga í röð.
Svefn, nesti og skjólfatnaður
Mikilvægt er að skólabörn fái nægan svefn og hvíld. Fái þau það ekki geta þau ekki notið þeirrar kennslu né sinnt því starfi sem fer fram í skólanum, þau verða þreytt og vinnan fer fyrir ofan garð og neðan. Hæfilegur svefn er talinn vera : 5 -8 ára börn 10 -12 klst. 9 - 12 ára börn 10 -11 klst. Mikilvægt er að börnin borði vel áður en farið er í skólann og hafi að auki með sér hollt og gott nesti. Einnig er nauðsynlegt að þau séu í góðum skjólfatnaði og með húfu/eyrnaband og vettlinga.
Veikindi og óhöpp
Veitt er fyrsta hjálp í skólanum og minniháttar slysum sinnt. Þurfi barnið að fara á heilsugæslustöð/slysadeild, er æskilegt að foreldrar/forráðamenn fari með barnið og er því mikilvægt að skólinn hafi símanúmer þeirra bæði heima, í farsíma og í vinnu. Ekki er ætlast til að slysum sem gerast utan skólatíma sé sinnt í skólanum. Ef barn er með greindan alvarlegan sjúkdóm sem getur stefnt heilsu/lífi þess í bráða hættu er nauðsynlegt að skólaheilsugæslan viti af því. Hér er átt við sjúkdóma eins og sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma.
Lyfjagjafir
Ef barn þarf að taka inn lyf á skólatíma er foreldrum bent á að setja sig í samband við skólaheilsugæsluna sem skipuleggur lyfjagjafir á skólatíma. Skólabörn skulu ekki fá önnur lyf í skólanum en þau sem hafa verið ávísuð af lækni. Börn skulu ekki hafa nein lyf undir höndum í skólanum nema í algjörum undantekningartilvikum, s.s. insúlín.
Lúsin
Því miður hefur það verið fastur liður í mörgum skólum undanfarin ár að lús komi upp. Nauðsynlegt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári nemenda. Lús tengist ekki sóðaskap og er alveg hættulaus. Ef tilkynning um lús berst skólanum, munu allir nemendur viðkomandi bekkjar fá tilkynningu heim. Foreldrum er bent á nauðsyn þess að bregðast við slíkum tilkynningum og kemba hár nemenda. Ábyrgðin er fyrst og fremst hjá foreldrum. Hægt er að nálgast leiðbeiningar hjá skólahjúkrunarfræðingi og í apóteku einnig á heimasíðu skólans.
Ráðleggingar til foreldra vegna lúsar
Allir geta fengið lús. Lúsasmit er ekki merki um óþrifnað. Lúsin smitast nær eingöngu við beina snertingu. Það er sáralítil hætta á að smitast af umhverfinu en það er möguleiki að smitast af greiðum/burstum og höfuðfötum. Lús sem dottið hefur úr höfði verður fljótt löskuð og veikburða. Lúsin er háð hári til að geta hreyft sig úr stað. Við viljum biðja ykkur að leita að lús hjá barni ykkar og öðru heimilisfólki í dag og næstu tvær vikur, samkvæmt eftirfarandi leiðbeiningum:
1. Skoðið hárið vel undir sterku ljósi, lúsin kann best við sig í hnakka, á hvirfli og aftan við eyru. Eggin/ nitin eru eins og litlir hnúðar á hárinu. Nitin eru oft ljós, dökk eða silfurlit. Lúsin límir þau föst, þess vegna strjúkast þau ekki auðveldlega af hárinu. Það er tiltölulega auðvelt að sjá fullvaxna lús, hún er 2-3 mm að stærð, oft grá, dökk eða ljósbrún. Hins vegar getur verið mjög erfitt að finna þær lýs sem eru nýkomar úr eggjunum, þær eru pínulitlar og hálfgegnsæjar.
2. Notið sérstaka lúsakamba sem fást í lyfjaverslunum. Til eru mismunandi tegundir af kömbum, t.d. sérstakir fyrir þykkt og sítt hár. Greiðið í gegnum hárið. Setjið hárnæringu í þurrt hárið og dreifið henni vel um hárið. Byrjið að kemba með kambinum við hársvörðinn og kembið vel út í hárendana, gerið þetta yfir hvítu blaði, spegli eða vaski með vatni. Sé hárið sítt eða þykkt er betra að skipta hárinu upp og kemba hvert svæði fyrir sig. Eftir hverja kembingu í gegn um hárið, er rétt að strjúka af kambinum með eldhúspappír til að tryggja að lús eða nit verði ekki eftir í kambinum.
Ef lús eða nit finnst er það ótvírætt merki um smit og þarfnast meðhöndlunar með sérstöku lúsameðali sem fæst án lyfseðils í lyfjaverslunum.
Tilkynnið lúsasmitið til skólans!
Leitið að lús hjá öllum í fjölskyldunni, meðhöndlið aðeins þá sem eru með lús. Fylgið leiðbeiningum um meðhöndlun nákvæmlega. Setjið lúsameðalið í rakt hárið, forðist að bleyta hárið of mikið, það dregur úr virkni lyfsins. Endurtakið alltaf meðferðina með lúsameðalinu eftir 8 daga eða samkvæmt leiðbeiningum. Ráðlagt er að kemba alla í fjölskyldunni daginn eftir meðferð (á 1. degi) til að athuga hvort meðferð hafi tekist. Ef lús finnst þarf að endurtaka meðferð strax. Kemba þarf á fjögurra daga fresti næstu 2 vikur þ.e. á: 1. degi, 5. degi, 9. degi og 13. degi. Ekki er nauðsynlegt að þrífa heimili eða fatnað sérstaklega. Ráðlegt er að meðhöndla bursta, greiður, kamba, hárskraut og húfur vegna möguleika á smiti. Hella skal sjóðandi vatni yfir og láta liggja í bleyti í 10-15 mín. eða frysta í 4-6 klst.
Ef þið þurfið nánari upplýsingar, vinsamlega farið á vef landlæknis.
Heimildir : Kim S. Larsen M.Sc & Ph.D. og Ása St. Atladóttir hjúkrunarfr. hjá Landlæknisembættinu.
Bestu kveðjur, Skólahjúkrunarfræðingur {jgototop}{/jgototop}
|