
| Námsver 8. - 10 bekkur |
|
|
|
Námsver fyrir unglinga er starfrækt við skólann. Þar er lögð áhersla á að koma til móts við nemendur þar sem þeir eru staddir námslega. Nemendur eru með fasta tíma á stundatöflu til lengri eða skemmri tíma. Annars vegar í samræmi við einstaklingsnámskrá eða stuðning samkvæmt námsáætlun bekkjar. Námsverið er einnig opið fyrir alla nemendur unglingadeildar þegar þurfa þykir. Helstu markmið Námsvers eru að: -mæta nemendum námslega -efla sjálfstæð vinnubrögð -efla námstækni -styrkja sjálfsmyndina hvað varðar námið -veita nemendum stuðning við heimanám -þjálfa lestur Nemendur sem þurfa svokölluð frávik við próftöku taka próf í Námsveri í smærri hópum. Má þar nefna lengri próftíma og munnleg próf. Nemendur sem eru með einstaklingsnámskrár taka próf alfarið í Námsveri. Umsjónarmaður Námsvers unglinga: Guðbjörg Kristín Arnardóttir |
| Síðast uppfærsla: föstudagur, 13 nóvember 2009 14:44 |