|
Hlutverk námsversins er að koma til móts við þá nemendur sem höllum fæti standa námslega. Umsjónarkennari sækir um og rökstyður aukna aðstoð fyrir nemendur sína á sérstöku eyðublaði vor hvert. Það ræðst síðan af tímamagni úthlutuðu af Menntasviði og eðli námserfiðleikanna hversu mikla aðstoð nemandinn fær að hausti. Aðstoð við nemendur fer fram með mismunandi hætti: með einkakennslu, með kennslu í litlum hópi eða með því að sérkennari kemur inn í bekk og aðstoðar einstaklinga/hópa þar.
Vandi sumra nemenda er slíkur að þeir þurfa aðstoð árum saman en aðrir þurfa aðstoð í skamman tíma. Námsgreinar sem nemendur eru einkum aðstoðaðir með eru: lestur, ritun og stærðfræði.
Námsverið hefur til umráða tvær stofur á þriðju hæð, stofur 301 og 302. Deildarstjóri sérkennslu eru Margrét Ó. Ívarsdóttir og Jason Ívarsson. Sérkennarar eru Halldóra Halldórsdóttir, Kristrún Þórðardóttir og Valgerður Björnsdóttir. Talmeinafræðingur skólans, Sigríður Ísleifsdóttir, starfar hér á mánudögum.
Til að kanna stöðu nemenda í 1. bekk eru að hausti árvisst lagðar fyrir ákveðnar prófanir:
1. Skimun 6 ára barna (talmeinafræðingur) 2. Tove Krogh teiknipróf 3. Boehm hugtakapróf 4. Hreyfiþroskapróf (íþróttakennarar) 5. Læsi (lestrarkönnun).
2. bekkur Læsi (lestrarkönnun).
3. bekkur Talnalykill (stærðfræðikönnun).
Samræmd próf í stærðfræði og íslensku eru lögð fyrir í 4. og 7. bekkjum að hausti.
|
|
Síðast uppfærsla: þriðjudagur, 06 október 2009 16:03 |