gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Mötuneyti Austurbæjarskóla Prenta Senda tengil

Forstöðumaður mötuneytisins er Guðmundur V. Ingvarsson, matreiðslumeistari.

Mötuneyti Austurbæjarskóla var stofnað árið 1996. Það er til húsa á 1. hæð skólans þar sem upprunalega var húsvarðaríbúð. Þar er nú eldhús og matsalur.

Hádegismatur
Hádegismatur stendur öllum nemendum skólans til boða. Matartímanum er skipt niður á árgangana þannig að þeir koma í mat einhvern tíma á milli kl. 11:00 til kl. 13:00. Nemendur sem koma með hádegisnesti matast einnig í matsalnum á sama tíma.

Matseðill er gerður fyrir hvern mánuð og birtur á heimasíðu skólans. Við gerð matseðils eru hagkvæmni og manneldismarkmið höfð til hliðsjónar. Boðið er upp á fjórar heitar máltíðir á viku og einn dag er smurt brauð ásamt skyri, súrmjólk eða grjónagraut. Grænmeti er haft með mat eftir því sem við á.

Matartímar í félagsaðstöðu unglinga.
Umsjónarmaður er Jón Gunnar Sveinsson.

Í félagsaðstöðu unglinga á efstu hæð skólans er aðstaða fyrir 8. –10. bekk til að borða nestið sitt.

Þar geta nemendur líka keypt samlokur og svaladrykki í nestistímanum á morgnana kl. 10.15 – 10.35.

Eyðublað vegna skránigar má nálgast hér...

Umgegnisreglur í mötuneyti:

Nemendur eiga að:
- fara úr skóm, yfirhöfnum og taka af sér höfuðföt áður en gengið er inn í borðsalinn.
- fara í einfalda röð fyrir framan afgreiðsluborðið.
- ganga hljóðlega og snyrtilega um borðsalinn
- temja sér góða borðsiði og sýna tillitssemi
- hreinsa af diskum sínum eftir máltíð og ganga frá borðbúnaði á vagn
- sýna starfsfólki mötuneytis fyllstu kurteisi


Brot á þessum reglum getur varðað brottrekstri úr mötuneyti!







Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 01 október 2009 11:39
 
midlogo