gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Sjúkrahúskennsla Prenta Senda tengil

Á Barnaspítala Hringsins er starfandi grunnskóli. Skólastofa skólans er staðsett á fyrstu hæð 21 E. Skólinn starfar á þeim tíma árs sem kennsla er í almennum skólum. Kennsla fer fram alla virka daga frá kl. 09:00 til 15:00.Flestir nemendur skólans koma af deildum Barnaspítalans. Auk þess sinnir grunnskólinn börnum sem koma frá Grensásdeild, Rjóðrinu og húðdeild Landspítalans.

Kennarar

Þrír kennarar starfa við skólann og eru þeir starfsmenn Austurbæjarskóla.

dora3helga3jon3

Dóra Guðrún Kristinsdóttir. Sími: 8988540. Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Helga Þórðardóttir. Sími: 8642987. Netfang: helgatho@landspitali.is Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Jón Agnar Ármannsson. Sími: 5435051. Netfang: jonagnar@landspitali.is Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það


Markmið og leiðir

Kennsla í Grunnskólanum við Barnaspítala Hringsins miðast við og er í anda íslensku grunnskólalaganna. Öll börn á Íslandi sem eru á aldrinum 6-16 ára eru skólaskyld hvort sem þau eru heilbrigð eða eiga við einhverskonar heilufarsleg vandamál að stríða . Samkvæmt reglugerð nr. 389 sem Menntamálaráðuneytið gaf út árið 1996 og fjallar um sjúkrakennslu eiga grunnskólanemendur rétt á sjúkrakennslu ef þeir hafa verið fimm daga eða lengur frá námi vegna veikinda. Kennslan þarf að geta komið til móts við þarfir sjúkra barna, svo þau geti notið náms þrátt fyrir veikindi og sjúkrahúsvist.

Starfið

Sjúkrahússkólinn er tengiliður nemandans við heimaskóla sinn. Að fengnu leyfi foreldra hafa sjúkrahúskennarar samband við kennara nemandans og í samráði við hann skipuleggja þeir kennsluna á sjúkrahúsinu. Reynt er að fylgja námsefni bekkjarins að því marki sem ástand barnsins og aðstæður á sjúkrahúsinu leyfa. Samband er haft við skóla nemandans eins oft og þurfa þykir. Þegar sjúkrahúsdvöl barnsins lýkur er haft samband við bekkjarkennara og honum gerð grein fyrir framvindu námsins.

Fjarfundabúnaður

Ef um langvarandi sjúkrahúsdvöl er að ræða er oft komið á fjarfundarsambandi við skóla nemenda. Tilgangur með búnaðinum er að veita nemendum tækifæri til að vera í sambandi við bekkinn sinn svo að félagsleg tengsl þeirra rofni ekki. Búnaðurinn tengir nemandann við skólastofuna í heimaskólanum. Nemandinn er staddur í skólastofunni á sjúkrahúsinu fyrir framan tölvu sem er tengd vefmyndavél og getur þannig fylgst með kennslunni og haft samskipti við bekkjarfélagana. Það er reynsla okkar að fjarfundatenging hvetji börnin í náminu og geri skólann skemmtilegri.

Þjónusta

Grunnskólinn er vel búinn námsgögnum sem tilheyra grunnskólastiginu. Hægt er að fá ýmiss konar námsgögn lánuð hjá kennurum á meðan á sjúkrahúsdvöl stendur. Auk þess er hægt að fá ýmiss konar afþreyingarefni svo sem sögubækur, spil,forrit og o.fl. Eldri nemendur geta fengið lánaðar nettengdar fartölvur.

Samstarf grunn og leikskólakennara

Góð samvinna er milli grunn og leikskólakennara. Sameiginlega vinnum við að því að gera dvöl barnanna sem ánægjulegasta með ýmsum hætti. Fáum til okkar góða gesti,vinnum sameiginleg þemaverkefni,bökum, spilum bingó og margt fleira. Grunn og leikskólakennarar sjá um útgáfu á ”Skólatíðindum”, sem er kynningarbæklingur sem segir frá því helsta úr starfi leik og grunnskóla.

Góð ráð til foreldra

Ef sýnt þykir að barn þurfi að dvelja um einhvern tíma á barnaspítalanum er æskilegt að láta bekkjarkennara barnsins vita. Hann getur þá tekið til námsgögn og námsáætlun sem nemandinn hefur með sér. Foreldrar ættu að hvetja börn sín til að nýta sér þá kennslu sem veitt er í skólanum eftir því sem heilsan leyfir. Ef nausyn þykir getur kennsla farið fram á sjúkrastofu. Foreldrar eru ávallt velkomnir á skólastofuna.

 

Hvers vegna sjúkrahúskennsla?

Sjúkrahússkólinn er tenging nemandans við heimaskólann.

Einbeiting að námi fær barnið til að gleyma sjúkdómnum og áhyggjum um stund.

Kennslan er einstaklingsmiðuð.

Skólinn leggur áherslu á það heilbrigða hjá barninu.

Skólinn er eðlilegt umhverfi barnsins og veitir því öryggi.

Tryggir samfellda framvindu náms og áhyggjur foreldra og nemenda minnka.

Stuðlar að bata.

Minnkar þörf á sérúrræðum í heimaskóla.
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 06 nóvember 2008 08:52
 
midlogo