gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Unglingadeild Prenta Senda tengil

Skólaárið 2009 til 2010 stjórna Jason Ívarsson og Sigrún Lilja Jónasdóttir deildinni í sameiningu.


Í unglingadeild skólans eru nú um 163 nemendur í 6 bekkjardeildum.

Í upphafi skólaárs taka stjórnendur og kennarar skólans á móti nemendum og þar eru línur skólaársins lagðar.


Valgreinar

Nemendur í 9. og 10. bekk velja 8 kennslustundir en nemendur í 8. bekk velja 6 kennslustundir. Nemendur hafa úr nokkuð fjölbreyttum námsgreinum að velja. Kynning á valgreinum fer fram fyrir páska.

Námsmat.
Haustönn lýkur með prófum í janúar. Vorönn lýkur með prófum og annars konar skólastarfi í maí/júní. Nánari lýsingar á námsmati eru í námsáætlunum greina.

Samræmd próf
Samræmd könnunarpróf eru tekin að hausti í 10. bekk.


Námsbækur

Þær námsbækur sem nemendur þurfa að nota við nám sitt fá þeir
afhentar á bókasafni skólans eða hjá kennurum. Flestar bæku eru eign skólans og fá börnin þær að láni meðan á náminu stendur. Afar mikilvægt er að nemendur gangi vel um bækurnar sem þeir fá í skólanum því yfirleitt eru þetta dýrar bækur og úthlutunarfé skólans til bókakaupa er takmarkað. Forráðamenn nemenda eru beðnir um að veita skólanum lið í því að nýta námsbækurnar sem best. Verði nemandi fyrir því að skemma eða týna bók sem er eign skólans ber honum að bæta það tjón.


Heimavinna

Í Austurbæjarskóla er ætlast til ákveðinnar heimavinnu nemenda sem er breytileg eftir árgöngum og námsgreinum.
Mikilvægt er að forráðamenn fylgist vel með heimanámi barna sinna og veiti þeim aðhald heima fyrir til þess að viðunnandi árangur náist.
Tilgangur með heimanámi er að ljúka óunnum verkefnum, þjálfa betur þau atriði sem fram hafa komið í kennslustundum og festa betur í minni mikilvæg atriði. Markvisst heimanám þjálfar að auki sjálfsaga og sjálfstæð vinnubrögð. Allir kennarar unglingadeildar skrá heimavinnuáætlun inn í Mentor.

Námsver
Námsver unglinga er í stofu 406 í miðrisi skólans. Þar er góð aðstaða til hvers kyns náms.
Námsverið er opið öllum nemendum unglingadeildar. Nemendum stendur ýmis aðstoð og aðstaða til boða í námsverinu. Þeir geta sótt námsverið reglulega í tilteknum námsgreinum samkvæmt stundaskrá. Þeir geta líka fengið aðstoð við heimanám eða verkefni sem þeir eru að vinna og geta þá komið á hvaða tíma sem er á opnunartímum námsversins. Sérkennari og umsjónarmaður námsvers er Guðbjörg Arnardóttir. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Móttökudeild nýbúa
Í skólanum hefur verið starfrækt móttökudeild fyrir nýbúa síðan 1994. Deildin er fyrir nemendur sem eru nýkomnir til landsins og hafa annað móðurmál en íslensku, eða hafa dvalið langtímum erlendis. Nemendur koma úr Reykjavík og eru í 1. - 10. bekk. Þeir tilheyra bekk og hafa sinn umsjónarkennara. Þeir fylgja bekknum í stærðfræði, ensku og verklegum greinum, en koma í íslenskukennslu í móttökuna þegar bekkurinn þeirra er í íslensku eða samfélagsgreinum. Nánari upplýsingar, sjá Skólinn.


Útivistartími
Forráðamenn eru minntir á lög um útivistartíma barna og unglinga sem sett eru til þess að tryggja þeim eðlilega hvíld. Börn yngri en 12 ára eiga að vera komin inn í síðasta lagi kl. 20.00 og börn 13 - 16 ára mega ekki vera úti eftir kl. 22.00. Starfsfólk Austurbæjarskóla hvetur forráðamenn til að tryggja börnum sínum næga hvíld. Til þess að nemendur geti tileinkað sér það sem fram fer í skólanum er nauðsynlegt að þeir komi úthvíldir til starfa.


Foreldrasamstarf
Tveir dagar eru ætlaðir í foreldraviðtöl. Á þessum dögum fara kennarar yfir vinnu og námsframvindu nemenda með forráðamönnum þeirra.

Í upphafi hvers skólaárs er haldinn kynningarfundur fyrir forráðamenn. Þar kynna kennarar þær námsgreinar sem þeir kenna auk þess sem félagsstarf skólans er kynnt.

Forráðamönnum er bent á að nýta sér vikulega viðtalstíma kennara.


Félagsmiðstöð
Félagsmiðstöðin 100og1 hefur verið starfrækt frá hausti 2002 í risinu í Austurbæjarskóla. Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) rekur 100og1og hefur það að leiðarljósi að bjóða börnum og unglingum upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf þeim að kostnaðarlausu eða á lágmarksverði. Í starfinu er lögð áhersla á jafnrétti og lýðræði. Á veturna er aðaláhersla lögð á starf með unglingum. Veffang:
www.kampur.is/101 – Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það


Ferðalög og fleira
Eftirfarandi hefðir hafa skapast í skólanum.

10. bekkur gistir 2 nætur í Þórsmörk í maí.

Óvíst er hvort hægt er að fjármagna ferðir fyrir 8. og 9. bekki.

 

 

Bekkirnir afla fjár til þessara ferða með köku- og kaffisölu á foreldradögum og jólaföndurdegi.

Síðasta skóladag fyrir jól fara nemendur í kirkju og eiga þar saman helgistund með starfsfólki skólans.

Á degi íslenskrar tungu, degi stærðfræðinnar og Stefánsdegi er ýmislegt gert í tilefni dagsins.


Skólareglur

1. Við sýnum hvert öðru kurteisi og tillitsemi

2. Við höfnum einelti og ofbeldi í sérhverri mynd

3. Við metum kosti hvers annars og höfnum fordómum

4. Við erum stundvís og göngum vel um skólann okkar og eigur hans

5. Við höfnum vímuefnum og leyfum ekki neyslu áfengis eða reykingar í skólanum

6. Við veljum heilbrigða lifnaðarhætti og erum ekki með gos eða sælgæti í skólanum á skólatíma

7. Við sýnum aðgæslu og leyfum ekki notkun reiðhjóla, hjólabretta eða línuskauta í skólanum á skólatíma

8. Við setjum bekkjarreglur og fylgjum þeim á sama hátt og skólareglunum

9. Þeir sem brjóta reglurnar fá áminningu eða refsingu, sem ákveðin er af skólastjórnendum eða á formlegum bekkjarfundum .


Skólasókn
Upplýsingar um skólasókn nemenda eru sendar forráðamönnum að
jafnaði vikulega í gegnum Mentor. Þægilegast er að senda slíkar upplýsingar í tölvupósti beint úr nemendabókhaldi skólans. Því er brýnt að netföng forráðamanna séu rétt skráð á skrifstofu skólans. Aðrir fá þessar upplýsingar heim í pósti
.

Nemendum ber skylda til að mæta stundvíslega í allar kennslustundir samkvæmt stundaskrá.

Forráðamenn nemenda skulu tilkynna gild forföll strax að morgni skóladags.

Komi nemandi í kennslustund eftir að kennari hefur fært inn í stundvísi fær hann seint og eitt fjarvistarstig.

Fyrir óheimila fjarvist eða brottvikningu úr kennslustund fær nemandi tvö fjarvistarstig. Bekkjarskrár eru gerðar upp vikulega og mun umsjónarkennari ræða við viðkomandi nemendur ef skólasókn er ábótavant.

Nemendur fá einkunn fyrir skólasókn fyrir hvora önn. Ef einkunn í skólasókn fer niður fyrir 8 hefur nemandi möguleika á því að hækka einkunnina með sérstökum samningi við umsjónarkennara. Mjög mikilvægt er að forráðamenn fylgist vel með skólasókn og námsframvindu barna sinna.

Stig Einkunn
0-3 10
4-7 9
8-12 8
13-17 7
18-25 6
26-35 5
36-50 4
51-66 3
67-84 2
85+ 1


Mætingakerfi fyrir unglingadeild Austurbæjarskóla


Þrep 1:

15 fjarvistarstig.

Umsjónarkennari sendir forráðamönnum bréf í pósti til upplýsingar um stöðuna.

Þrep 2:

31 fjarvistarstig.

Umsjónarkennari boðar forráðamenn og nemandann á fund.

Þrep 3:

51 fjarvistarstig.

Umsjónarkennari vísar málinu til ráðgjafarnefndar. Ráðgjafarnefnd boðar foráðamenn og nemandann á fund. Þeim er gerð grein fyrir að þetta er síðasta úrræðið innan skólans.

Þrep 4:

71 fjarvistarstig.

Málinu vísað til Nemendaverndarráðs sem tekur ákvörðun um að vísa málinu til Menntasviðs, Þjónustumiðstöðvar og/eða Barnaverndarnefndar Reykjavíkur.


Ráðgjafarnefnd
Hlutverk nefndarinnar er að vera kennurum, öðrum starfsmönnum og foreldrum nemenda í unglingadeildum til ráðgjafar í málum sem varða námsvanda nemenda, hegðun, félagslegan vanda, tilfinningavanda og skólasókn.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Reglur um leyfi nemenda
Umsjónarkennari getur veitt nemendum leyfi í einn dag. Ef óskað er eftir lengra leyfi þurfa forráðamenn nemenda að hafa samband við skrifstofu skólans eða skólastjórnendur og fylla út þar til gert eyðublað um leyfisumsókn. Einnig er hægt að sækja þessi eyðublöð á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að forráðamenn hafi samráð við kennarana vegna námsframvindu barna sinna. Öll röskun á námi nemenda sem hlýst af umbeðnu leyfi er á ábyrgð forráðamanna.

Forföll nemenda
Tilkynna þarf veikindi og önnur forföll nemenda á skrifstofu skólans eins fljótt og verða má. Mikilvægt er að forráðamenn tilkynni forföll vegna veikinda daglega.

Forföll kennara

Þegar forföll kennara verða er reynt að fá afleysingakennara. Þó getur sú staða komið upp að það takist ekki. Í þeim tilvikum áskilur skólinn sér rétt til að senda börn í 8. -10. bekk heim.


Óveður og ófærð
Það er forráðamanna sjálfra að meta það hvort þeir senda börn sín í skólann eða halda þeim heima í óveðrum og ófærð. Einstakir skólar ákveða ekki að fella niður skólahald vegna veðurs. Tilkynning um það gæti þó komið frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur fyrir alla skóla á hennar svæði.


Slys í skóla
Slasist barn í skólanum og þurfi á slysadeild er reynt að ná í forráðamann. Því er mikilvægt að í skólanum sé bæði heimasími og vinnusími forráðamanna. Takist ekki að ná í aðstandendur nemenda sér starfsfólk skólans um að koma barninu á slysadeild
.


Strætómiðar

Um afhendingu strætómiða gilda reglur sem borgaryfirvöld hafa sett.

Matartímar.
Kl. 12.45 er hádegisverðartími 8.- 10. bekkja í sal skólans í norðurrisi. Nemendur geta einnig keypt heitan mat í matsal skólans. Nemendur eru hvattir til þess að hafa með sér nesti í skólann. Í hléi kl. 10.15-10.35 geta nemendur snætt nesti sitt í salnum eða keypt sér hressingu þar.


Nemendaverndarráð

Hlutverk nemendaverndarráðs er að fjalla um vandamál einstakra nemenda og að finna leiðir til úrbóta fyrir þá.Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Olweus

Unnið er samkvæmt Olweusarkerfi við meðferð eineltismála í skólanum. Upplýsingar um þetta kerfi er að finna á vefslóðinni www.olweus.is Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Áfallaráð
Í skólanum starfar áfallaráð sem skipað er skólastjórnendum, sérfræðingum og sóknarpresti.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Sálfræðingur
Sálfræðingur skólans er Hildur Jónsdóttir. Kennarar og/eða foreldrar barns geta leitað eftir aðstoð sálfræðings.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Námsráðgjafi
Við skólann starfar námsráðgjafi sem er nemendum innan handar við skipulagningu á náminu auk þess skipuleggur hann starfs- og skólakynningar.

Námsráðgjafi skólans er Berglind S Heiðarsdóttir. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

 

Heilsugæsla
Hjúkrunarfræðingur skólans heitir Sigrún Björnsdóttir. Skólalæknir er Ásmundur Magnússon heilsugæslulæknir á Heilsugæslu Miðbæjar.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Skólabókasafn
Starfsmaður bókasafnsins eru Inga Lára Birgisdóttir, bókasafnsfræðingur.
Nánari upplýsingar, sjá Skólinn.


Samstarf við framhaldsskóla
Nemendum í 10. bekk er nú boðið upp á að taka framhaldsskólaáfanga í stærðfræði í samvinnu við MH. Í vissum tilfellum geta nemendur tekið aðra framhaldsskólaáfanga í fjarnámi. Nemendum er einnig boðið að fara í skólakynningar í framhaldsskóla.

 

Upplýsingar til foreldra og nemenda í unglingadeild Austurbæjarskóla haustið 2010

 

Forráðamenn nemenda eru minntir á að þeim ber að sjá til þess að nemendur mæti stundvíslega í skólann með réttar námsbækur og námsgögn.

 

Forföll ber að tilkynna samdægurs á skrifstofu skólans fyrir kl. 08.00 í síma       411 7200. Ef veikindi vara lengur en einn dag skal tilkynna þau daglega. Umsjónarkennari getur gefið leyfi í einn dag. Ef óskað er eftir lengra leyfi þarf að sækja um það á skrifstofu skólans á þar til gerðum eyðublöðum. Einnig er hægt að gera það rafrænt á heimasíðu skólans.

 

Skólareglur hafa verið endurskoðaðar og voru kynntar nemendum við skólasetningu. Að venju er lögð mikil áhersla á að þeim sé framfylgt.

Í undantekningartilfellum fara nemendur ekki að fyrirmælum starfsmanna skólans. Ef það hendir og nemandi lætur sér ekki segjast verða foreldrar / forráðamenn kallaðir til aðstoðar.

 

Nemendum er óheimilt að hafa kveikt á GSM símum, Ipod, mp3 spilurum eða öðrum tónlistartækjum í kennslustundum. Misnotkun á þessum tækjum getur varðað afnotamissi í skemmri eða lengri tíma. Sérstök athygli er vakin á því að þessi tæki eru dýr og eru því freisting fyrir suma að taka þau ófrjálsri hendi. Ekki er hægt að taka ábyrgð á þessum né öðrum eigum nemenda enda eiga þeir ekki að koma með verðmæti í skólann að nauðsynjalausu.

 

Nemendum er óheimilt að koma með línuskauta, hlaupahjól, hjólabretti eða hjólaskó í skólann. Nemendum er heimilt að koma á reiðhjóli í skólann. Þeir verða að læsa því við hjólagrindur enda bera þeir ábyrgð á þessum eigum sínum. Nemendur eru hvattir til þess að merkja fatnað, skó, bækur og töskur greinilega.

 

Ætlast er til að eldri nemendur taki vel á móti nýjum nemendum. Svokölluð „busun“ er bönnuð eins og annað ofbeldi enda starfar skólinn eftir eineltisáætlun Olweusar. Mikilvægt er að foreldrar láti starfsmenn skólans vita verði þeir varir við einelti af einhverju tagi því það verður ekki liðið. Bent er á að hægt er að láta vita af grun um einelti á formi á heimasíðu skólans.

 

Í vetur munu nemendur í 9. og 10. bekkjum setja sér námsmarkmið fyrir hvora önn í samráði við foreldra / forráðamenn sína. Námsmarkmiðum fyrir fyrri önn skal skila fyrir 15. september, en fyrir seinni önn fyrir 15. febrúar.

 

Vert er að minna nemendur á að vinna jafnt og þétt yfir alla önnina enda gildir starfseinkunn helming af lokaeinkunn.

Nemendur fá úthlutað kennslubókum og bera ábyrgð á þeim. Ekki má skrifa neitt í bækur af bókasafni. Glataða bók verða nemendur að bæta sjálfir. Mikilvægt er að nemendur skili öllum bókum á bókasafn að vori.

 

Yfirlit um skólasókn og ástundun er sent foreldrum vikulega í gegnum Mentor. Þar hafa foreldrar aðgang að ýmsum upplýsingum um börn sín. Allar upplýsingar um lykilorð nemenda og foreldra í Mentor geta foreldrar fengið á skrifstofu skólans. Séreinkunn er gefin fyrir skólasókn.

 

Nemendum býðst að kaupa heitan hádegismat í mötuneyti skólans. Skráning í matinn fer í gegnum rafraen.reykjavik.is. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þennan möguleika, sérstaklega þegar skóladagurinn er langur.

 

Drykkir og brauð fást keypt í matsal unglinga í norðurrisi í frímínútum fyrir hádegi. Salan hefst fimmtudaginn 26. ágúst. Ekki er síðra að nemendur komi með hollt og gott nesti í skólann. Engin sala er í risinu í hádeginu.

 

Í upphafi skólaárs velja nemendur fulltrúa í nemenda- og íþróttaráð sem sjá um félagsstarf skólans í samvinnu við kennara og félagsmiðstöðina 100og1.

 

Nemendur geta fengið afnot af skápum yfir veturinn gegn 1000 kr. gjaldi. Gjaldið fæst aðeins endurgreitt ef lykli er skilað og skápurinn er í viðunandi ástandi.

Nemendur í unglingadeild eru nokkru fleiri en skáparnir svo mögulegt er að samnýta skápa gegn hálfu gjaldi.

Lyklar fást afhentir í matsal í norðurrisi sem hér segir:

10. bekkur mánudaginn 23. ágúst klukkan 09.30

  9. bekkur mánudaginn 23. ágúst klukkan 10.00

  8. bekkur mánudaginn 23. ágúst klukkan 10.30

Einnig er hægt að fá lykla frá 09.00 – 12.00 þriðjudaginn 24. ágúst.

 

Námsefniskynning / haustfundur verður í skólanum fimmtudaginn 9. september klukkan 08.05-09.30. Þann morgun mæta foreldrar fyrst í skólann og kennsla hefst klukkan 09.35.

 

Tveir foreldradagar verða í vetur, 12. október og 3. febrúar. Sjá má skóladagatalið í heild sinni á heimasíðu skólans.

 

Samræmd könnunarpróf í 10. bekk verða í september. Prófað verður í íslensku mánudaginn 20. september, ensku þriðjudaginn 21. september og stærðfræði miðvikudaginn 22. september.

 

Stúlkur byrja í sundi á fyrri önn. Til 17. september fer íþróttakennslan fram úti og þá eiga nemendur að mæta með hentug útiíþróttaföt og handklæði.

 

Síðastliðinn vetur gengu nemendur vel um húsnæði og eigur skólans. Þeir eru hvattir til þess að halda áfram á sömu braut. Góð umgengni sparar viðhald og þrif.

 

Í flestum tilfellum var hægt að verða við óskum nemenda um val. Í undantekningartilfellum er hægt að breyta valgreinum sé það stutt mjög gildum rökum. Frestur til breytinga rennur út mánudaginn 6. september.

 

Í skólanum hefur verið starfrækt nýbúadeild síðan haustið 1994. Deildin er fyrir nemendur sem eru nýkomnir til landsins og hafa annað móðurmál en íslensku og einnig íslenska nemendur sem hafa dvalið langtímum erlendis. Nemendur koma úr Reykjavík og eru í 1. – 10. bekk. Þeir tilheyra allir almennum bekk og hafa sinn umsjónarkennara.

 

Námsver fyrir unglinga er starfrækt í Austurbæjarskóla. Nánari upplýsingar um starfsemina er að finna á heimasíðu skólans.

 

Við skólann starfar námsráðgjafi, Berglind S. Heiðarsdóttir. Hún veitir m.a. ráðgjöf um vinnubrögð í námi, persónulegan og félagslegan vanda auk ráðgjafar um náms– og starfsval. Ennfremur er námsráðgjafi trúnaðar– og talsmaður nemenda skólans. Nemendur og foreldrar geta haft samband við námsráðgjafa í síma    411-7192 eða sent tölvubréf á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

 

Kennarar og starfsfólk bjóða alla nemendur velkomna í skólann með von um farsælt samstarf á skólaárinu.

 

Skólastjóri

 

 

 

 

 

Síðast uppfærsla: föstudagur, 03 september 2010 15:39
 
midlogo