
| Miðstig |
|
|
|
Umsjón með miðstigi hefur Jason Ívarsson. Nemendafjöldi í vetur er u.þ.b. 152. Námsbækur Foreldrar eru minntir á lög um útivistartíma barna og unglinga sem sett eru til þess að tryggja þeim eðlilega hvíld. Börn yngri en 12 ára eiga að vera komin inn í síðasta lagi kl. 20.00 og börn. Starfsfólk Austurbæjarskóla hvetur foreldra til að tryggja börnum sínum næga hvíld. Til þess að nemendur geti tileinkað sér það sem fram fer í skólanum er nauðsynlegt að þeir komi úthvíldir til starfa. Foreldrasamstarf Haustfundur með foreldrum þar sem farið er yfir námsefni vetrarins og vetrarstarf verður haldnirinn 11. september kl. 8.05 - 9.30. Foreldrar eru boðaðir í viðtal í skólann tvisvar á skólaárinu. Mjög mikilvægt er að foreldrar og nemendur komi og hitti kennarana þegar þessir fundir eru haldnir. Ein megin forsendan fyrir farsælli skólagöngu nemenda er gott samstarf heimilis og skóla. Þessir foreldrafundir eru einn liðurinn í því samstarfi. Félagsstarf og ferðalög Í 6. og 7. bekk hafa uppákomur í félagsstarfi verið í höndum ÍTR fyrir utan eina bekkjarskemmtun sem umsjónarkennarar sjá um. 5. bekkur heldur bekkjarskemmtanir með óbreyttu sniði frá 4. bekk. Austurbæjarskóli hefur tekið þátt í söfnunarstarfi á vegum hjálparstarfs ABC. Söfnunarátakið hefur farið fram í 5. bekkjum og hefur gengið vel á síðustu árum. Nánari útfærslur eiga að vera í höndum stjórnar hjálparstarfsins og á söfnunin ekki að mæða mikið á umsjónarkennurum. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur þann 16. nóvember í skólanum. Þann dag sem er afmælisdagur Jónasar Hallgrímssonar, er stóra upplestrarkeppnin sett í bíósalnum. Deildarstjóri setur keppnina formlega og hver og einn nemandi í 7. bekk les brot úr verkum skáldsins. Hver bekkur flytur þá annað hvort eina sögu eða nokkur ljóð. Markmiðið er að allir nemendur verði duglegir að æfa framburð og túlkun texta. Í febrúar fer deildarstjóri síðan inn í bekkina, hlustar á nemendur lesa og velur ásamt umsjónarkennara tvo nemendur til að taka þátt í innanhússkeppni Austurbæjarskóla. Þar eru valdir fjórir nemendur; tveir aðalmenn og tveir varamenn til að taka þátt í aðalkeppninni í mars. Venjan hefur verið að bjóða 6. bekk á innanhússkeppnina til að sjá hvernig þetta fer fram og að sjálfsögðu verða 7. bekkirnir ásamt umsjónarkennurum staddir í salnum þennan dag. Í dómnefnd hafa ýmist setið kennsluráðgjafar á Fræðslumiðstöð, deildarstjóri, sérkennari eða bókasafnsfræðingur. Skólareglur 1. Við sýnum hvert öðru kurteisi og tillitsemi 2. Við höfnum einelti og ofbeldi í sérhverri mynd 3. Við metum kosti hvers annars og höfnum fordómum 4. Við erum stundvís og göngum vel um skólann okkar og eigur hans 5. Við höfnum vímuefnum og leyfum ekki neyslu áfengis eða reykingar í skólanum 6. Við veljum heilbrigða lifnaðarhætti og erum ekki með gos eða sælgæti í skólanum á skólatíma 7. Við sýnum aðgæslu og leyfum ekki notkun reiðhjóla, hjólabretta eða línuskauta í skólanum á skólatíma 8. Við setjum bekkjarreglur og fylgjum þeim á sama hátt og skólareglunum 9. Þeir sem brjóta reglurnar fá áminningu eða refsingu, sem ákveðin er af skólastjórnendum eða á formlegum bekkjarfundum Skólasókn
|
Þrep 1: 15 fjarvistarstig. Umsjónarkennari sendir forráðamönnum bréf í pósti til upplýsingar um stöðuna. Þrep 2: 31 fjarvistarstig. Umsjónarkennari boðar forráðamenn og nemandann á fund. Þrep 3: 51 fjarvistarstig. Umsjónarkennari vísar málinu til ráðgjafarnefndar. Ráðgjafarnefnd boðar foráðamenn og nemandann á fund. Þeim er gerð grein fyrir að þetta er síðasta úrræðið innan skólans. Þrep 4: 71 fjarvistarstig. Málinu vísað til Nemendaverndarráðs sem tekur ákvörðun um að vísa málinu til Menntasviðs, Þjónustumiðstöðvar og/eða Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. |
Ráðgjafarnefnd
Hlutverk nefndarinnar er að vera kennurum, öðrum starfsmönnum og foreldrum nemenda til ráðgjafar í málum sem varða námsvanda nemenda, hegðun, félagslegan vanda, tilfinningavanda og skólasókn.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
Reglur um leyfi nemenda
Umsjónarkennari getur veitt nemendum leyfi í einn dag. Ef óskað er eftir lengra leyfi þurfa forráðamenn nemenda að hafa samband við skrifstofu skólans eða skólastjórnendur og fylla út þar til gert eyðublað um leyfisumsókn, eyðublöðin má nálgast á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að foreldrar hafi samráð við kennarana vegna námsframvindu barna sinna í lengri leyfum. Öll röskun á námi nemenda sem hlýst af umbeðnu leyfi er á ábyrgð forráðamanna.
Forföll nemenda
Tilkynna þarf veikindi og önnur forföll nemenda á skrifstofu skólans eins fljótt og verða má. Mikilvægt er að foreldrar tilkynni forföll vegna veikinda daglega.
Forföll kennara
Þegar forföll kennara verða er reynt í lengstu lög að fá afleysingakennara. Þó getur sú staða komið upp að það takist ekki. Í þeim tilvikum áskilja skólayfirvöld sér rétt til þess að senda börn í 5. - 7. bekk heim. Þegar það gerist er alltaf athugað hvort nemendur komast inn heima hjá sér.
Óveður og ófærð
Það er foreldra sjálfra að meta það hvort þeir senda börn sín í skólann eða halda þeim heima í óveðrum og ófærð. Einstakir skólar ákveða ekki að fella niður skólahald vegna veðurs. Tilkynning um það gæti þó komið frá Menntasviði fyrir alla skóla á hennar svæði.
Slys í skóla
Slasist barn í skólanum og þurfi á slysadeild er reynt að ná í foreldri. Því er mikilvægt að í skólanum sé bæði heimasími og vinnusími foreldra. Takist ekki að ná í foreldra sér starfsfólk skólans um að koma barninu á slysadeild.
Óskilamunir
Á hverju ári safnast mikið af óskilafatnaði fyrir í skólanum. Mikilvægt er að allur fatnaður nemenda sé greinilega merktur. Við viljum hvetja foreldra til að koma í skólann og athuga hjá gangavörðum ef föt eða aðrar eigur nemenda hafa týnst. Óskilamunir eru til sýnis á göngum skólans á foreldradögum. Það sem eftir verður er geymt út önnina en síðan afhent Hjálpræðishernum.
Strætómiðar
Um afhendingu strætómiða gilda reglur sem borgaryfirvöld hafa sett:
Mötuneyti og matartímar
Nemendur 5. – 7. bekkjar geta fengið keyptan hádegismat í mötuneyti skólans og kostar það nú kr. 5600 á mánuði. Matseðill er gerður fyrir hvern mánuð og er hann aðgengilegur foreldrum á heimasíðu skólans. Matartími er frá kl. 11:20 og er skipt á milli árganganna. Nemendur sem koma með hádegisnesti matast á sama tíma í matsalnum.
Mötuneytið afhendir líka nýmjólk og léttmjólk sem nemendur 5.- 7. bekkjar fá í nestistíma á morgnana. Fyrir það er greitt tvisvar á skólaárinu, í upphafi hvorrar annar. Í nestistímum á morgnana borðar 5.- 7. bekkur í sinni bekkjarstofu.
Kl. 11:20 – 11:40 er hádegisverðartími 7. bekkjar í félagsaðstöðu unglinga á efstu hæð skólans. Þar geta nemendur keypt samlokur, nýmjólk og léttmjólk eða borðað sitt eigið nesti. Umsóknareyðublöð fyrir mötuneytið fást á skrifstofu skólans.
Skólanesti
Æskilegt er að börn matist vel áður en farið er í skólann. Þau börn sem koma svöng til starfa eiga í miklum erfiðleikum með að einbeita sér að uppbyggilegu skólastarfi. Einnig er nauðsynlegt að börnin komi með nesti að heiman til þess að borða í nestistímum. Gott nesti þarf að vera mjólk eða hreinn ávaxtasafi, brauð helst gróft með góðu áleggi, t.d. osti, grænmeti, eggjum, kjöti eða fiskmeti. Gott er einnig að hafa ávexti og grænmeti í nestisboxinu en alls ekki kökur og sætindi.
Fyrirkomulag á sölu mjólkur í skólanum fyrir nemendur í 5. - 7. bekk er þannig að þeir geta keypt drykki í „áskrift". Um er að ræða nýmjólk og léttmjólk. Mjólkin er greidd fyrirfram í upphafi hvorrar annar og þannig geta foreldrar tryggt að börnin fái drykk á hverjum degi.
Nemendaverndarráð
Hlutverk nemendaverndarráðs er að fjalla um vandamál einstakra nemenda og að finna leiðir til úrbóta fyrir þá.
Nánari upplýsingar, sjá stoðkerfi.
Vináttuverkefnið Mentor
Mentorverkefnið Vinátta er tilrauna- og þróunarverkefni þar sem Kennaraháskóli Íslands, Háskóli Íslands og nokkrir grunnskólar í Reykjavík vinna saman að því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvers annars. Sjá: vinátta.is og Stoðkerfi.
Olweus
Unnið er samkvæmt Olweusarkerfi við meðferð eineltismála í skólanum. Upplýsingar um þetta kerfi er að finna á vefslóðinni www.olweus.is
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
Áfallaráð
Í skólanum starfar áfallaráð sem skipað er skólastjórnendum, sérfræðingum og sóknarpresti. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
Sálfræðingur
Sálfræðingur skólans er Hildur Jónsdóttir. Kennarar og/eða foreldrar barns geta leitað eftir aðstoð sálfræðings.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
Námsráðgjöf
Námsráðgjafi skólans er Berglind S. Heiðarsdóttir. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
.
Heilsugæsla
Hjúkrunarfræðingur skólans heitir Sigrún Björnsdóttir.
Skólalæknir er Ásmundur Magnússon heilsugæslulæknir á Heilsugæslu Miðbæjar. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.
Skólahljómsveit
Á vegum skólalúðrasveitar Mið- og Vesturbæjar er kennt á blásturs- og ásláttarhljóðfæri. Nemendur fá að fara úr kennslustundum í einkatíma í hljóðfæraleik eftir skipulagi sem gerir það að verkum að nemandi missir ekki af sömu kennslustund fyrr en að nokkrum vikum liðnum. Best er að byrja 8 -9 ára gamall.
Ætlast er til að nemendur æfi sig reglulega heima hjá sér og mæti á samæfingar í Hljómskálanum einu sinni í viku. Sum hljóðfæri eru vinsælli en önnur og óvíst hvort hægt er að verða við óskum allra í því sambandi.
Skólabókasafn
Starfsmaður bókasafnsins er Inga Lára Birgisdóttir bókasafnsfræðingur . Nánari upplýsingar, sjá skólinn.
{jgototop}{/jgototop}