gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Yngsta stig 1. - 4. bekkur Prenta Senda tengil

Deildarstjóri á yngsta stigi er Margrét Ó. Ívarsdóttir.

Skólaárið 2009-2010 eru starfandi tvær bekkjadeildir í öllum árgöngum og er nemendafjöldi 163 nemendur.

Samstarf við leikskóla
Í gangi er þróunarvinna um samvinnu við leikskólana í hverfinu. Kennarar í 1. bekk fara í heimsóknir á leikskólana á haustönn til að kynna sér starfsemina. Nemendur fara með, hver á sinn gamla leikskóla. Öllum 5 ára börnum af þessum leikskólum er svo boðið í heimsókn á vorönn. Þau fara í eina kennslustund með 1. bekkjum, fara með þeim í frímínútur og svo fer hópurinn tvískiptur í tónmennta- og íþróttatíma. Í maí koma svo öll innrituð 6. ára börn í heimsókn ásamt foreldrum. Börnin fá sögustund á bókasafni á meðan foreldrar eru fræddir um starfsemi skólans hjá deildar- og skólastjóra. Boðið er upp á veitingar.

Námsmat
Námsmat fer fram tvisvar á skólaárinu; í janúar og júní. Lagðar eru kannanir fyrir nemendur, mismargar eftir árgöngum. Í janúar er lestur metinn í 1. bekk, lestur, lesskilningur, skrift og reikningur í 2. - 3. bekk og þessar greinar ásamt samfélagsfræði, kristinfræði og náttúrufræði í 4. bekk. Gefnar eru umsagnir í list- og verkgreinum á báðum önnum í 2. - 4. bekk. Í júní er gefið námsmat í öllum greinum í 2. - 4. bekk, en í lestri, skrift og reikningi í 1. bekk.
Námsmati er skilað í umsögnunum mjög gott (mg), gott (go), sæmilegt (sl) og ábótavant (av). Að baki mg eru 85%- 100% námsmarkmiða uppfyllt, 70% - 84% að baki go, 41% - 69% markmiða  að baki sl og uppfyllt námsmarkmið undir 40% að baki av.


Samræmd próf

Samræmd próf verða í íslensku og stærðfræði í 4. bekk þann 17. og 18. september.

Námsbækur
Þær námsbækur sem nemendur þurfa að nota við nám sitt fá þeir afhentar í skólanum hjá kennurum eða á bókasafni skólans. Sumar bækur eru eign skólans og fá börnin þær að láni meðan á náminu stendur. Því er afar mikilvægt að nemendur gangi vel um bækurnar sem þeir fá því yfirleitt eru þetta dýrar bækur en úthlutunarfé til bókakaupa takmarkað. Við viljum hvetja foreldra til að aðstoða okkur við að halda þessum málum í því horfi sem nauðsynlegt er. Verði nemandi fyrir því að skemma eða týna bók sem er eign skólans ber honum að bæta það tjón.
Umsjónarkennarar innheimta gjald í bekkjarsjóð hjá foreldrum í upphafi skólaársins og kaupa sameiginlega inn stílabækur, möppur og annað sem nemendur þurfa í skólann. Einnig er sjóðurinn notaður í ferðalög, ef afgangur verður.

Heimanámsaðstoð

Ekki er boðið upp á heimanámsaðstoð í vetur.

Heimavinna
Í Austurbæjarskóla er ætlast til ákveðinnar heimavinnu nemenda sem er breytileg eftir árgöngum og námsgreinum. Mikilvægt er að foreldrar fylgist vel með heimanámi barna sinna og veiti þeim aðhald heima fyrir til þess að viðunnandi árangur náist.
Tilgangur með heimanámi er að ljúka óunnum verkefnum, þjálfa betur þau atriði sem fram hafa komið í kennslustundum og festa betur í minni mikilvæg atriði. Markvisst heimanám þjálfar að auki sjálfsaga og sjálfstæð vinnubrögð. Lestur fer alltaf fram heima.

Námsver
Í 1. - 4. bekkjum annast Valgerður Björnsdóttir sérkennari og Halldóra Halldórsdóttir kennslu.
Sigríður Ísleifsdóttir er talmeinafræðingur skólans. Hún er við á mánudögum.

Móttökudeild nýbúa
Í skólanum hefur verið starfrækt móttökudeild fyrir nýbúa síðan 1994. Deildin er fyrir nemendur sem eru nýkomnir til landsins og hafa annað móðurmál en íslensku, eða hafa dvalið langtímum erlendis. Nemendur koma úr Reykjavík og eru í 1. - 10. bekk. Þeir tilheyra bekk og hafa sinn umsjónarkennara. Þeir fylgja bekknum í stærðfræði, ensku og verklegum greinum, en koma í íslenskukennslu í móttökuna þegar bekkurinn þeirra er í íslensku eða samfélagsgreinum. Nánari upplýsingar, sjá Stjórnskipulag.

Útivistartími
Foreldrar eru minntir á lög um útivistartíma barna og unglinga sem sett eru til þess að tryggja þeim eðlilega hvíld. Börn yngri en 12 ára eiga að vera komin inn í síðasta lagi kl. 20.00 og börn 13 - 16 ára mega ekki vera úti eftir kl. 22.00. Starfsfólk Austurbæjarskóla hvetur foreldra til að tryggja börnum sínum næga hvíld. Til þess að nemendur geti tileinkað sér það sem fram fer í skólanum er nauðsynlegt að þeir komi úthvíldir til starfa.

Foreldrasamstarf
Haustfundir með foreldrum sex ára barna eru um miðjan september. Fundurinn er í bíósalnum kl. 18:00 þar sem skólastjóri, deildarstjóri og list- og verkgreinakennarar ávarpa fundinn og kynna starfsemi skólans. Svo fara foreldrar í stofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar kynna væntanlegt skólastarf og foreldrastarf komandi vetrar er einnig skipulagt. Boðið verður upp á súpu og salat. 

Haustfundir með foreldrum barna í 2.- 4. bekk hafa verið með svipuðu sniði, einnig í september en þó er ekki safnast fyrir í salnum í upphafi, heldur fara foreldrar strax í bekkjarstofur barna sinna. Þar er námsefni vetrarins kynnt og koma list- og verkgreinarkennarar einnig í stofurnar og kynna sína kennslu. Foreldrastarf vetrarins er einnig undirbúið. Fundurinn verður fimmtudagsmorguninn 24. september kl. 8:30-10:00. Kennsla hefst í 2. bekk kl. 10:15 en í 3. og 4. bekk kl. 10:35. Boðið verður upp á gæslu fyrir þá nemendur sem þurfa á meðan á fundinum stendur. 

Foreldradagar hafa verið í október og febrúar. Þann dag mæta foreldrar með barni sínu í 15. mínútna viðtal við kennara og líta yfir stöðu nemandans í skólanum. Nemendur koma ekki með foreldrum í 1. og 2. bekk.
Samræmd og sameiginleg jóladagskrá er send til allra nemenda skólans í desember. Þar er farið yfir jólaskemmtanir og kirkjuferðir og hvenær hver árgangur mætir á þær.


Frístundaheimilið Draumaland
Foreldrar geta nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu og á heimasíðu skólans undir Draumaland eða hjá umsjónarmanni Draumalands, Andrési Úlfari Helgusyni. Umsjónarmaður er með viðtalstíma eftir samkomulagi.

Félagsstarf og ferðalög
Vorið 2010 verður prófum lokið 27. maí. Í framhaldi af því verður óhefðbundið skólastarf, m.a verður sérstakur íþróttadagur hjá öllum skólanum og  sérstakur útikennsludagur og reynt verður að nýta nánasta umhverfi skólans til náms. Þann dag fara nemendur ásamt kennurum og skólaliðum út á Miklatún til ýmiss konar íþróttakeppna og leikja.

Vorferðalög í 1. - 4. bekk
1. bekkur fer í gönguferð í nágrenni skólans t.d niður að Tjörn. Ekki er farið á sömu staði ár hvert.
2. bekkur fer í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
3. bekkur fer í fjöruferð á Álftanes.
4. bekkur fer í strætóferð í Heiðmörk eða í Elliðarárdalinn.
Þetta er þó breytilegt milli ára.

Að auki fara bekkirnir í ýmsar vettvangs –og kynnisferðir yfir veturinn, sjá Námsáætlanir.

Skólareglur
1. Við sýnum hvert öðru kurteisi og tillitsemi
2. Við höfnum einelti og ofbeldi í sérhverri mynd
3. Við metum kosti hvers annars og höfnum fordómum
4. Við erum stundvís og göngum vel um skólann okkar og eigur hans
5. Við höfnum vímuefnum og leyfum ekki neyslu áfengis eða reykingar í skólanum
6. Við veljum heilbrigða lifnaðarhætti og erum ekki með gos eða sælgæti í skólanum á skólatíma
7. Við sýnum aðgæslu og leyfum ekki notkun reiðhjóla, hjólabretta eða línuskauta í skólanum á skólatíma
8. Við setjum bekkjarreglur og fylgjum þeim á sama hátt og skólareglunum
9. Þeir sem brjóta reglurnar fá áminningu eða refsingu, sem ákveðin er af skólastjórnendum eða á formlegum bekkjarfundum

Skólasókn
Upplýsingar um skólasókn nemenda eru sendar foreldrum að jafnaði mánaðarlega. Þægilegast er að senda slíkar upplýsingar í tölvupósti beint úr nemendabókhaldi skólans. Því er brýnt að netföng foreldra séu rétt skráð á skrifstofu skólans. Aðrir fá þessar upplýsingar heim í töskupósti.

Ráðgjafarnefnd
Hlutverk nefndarinnar er að vera kennurum, öðrum starfsmönnum og foreldrum nemenda í unglingadeildum til ráðgjafar í málum sem varða námsvanda nemenda, hegðun, félagslegan vanda, tilfinningavanda og skólasókn.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Reglur um leyfi nemenda
Umsjónarkennari getur veitt nemendum leyfi í einn dag. Ef óskað er eftir lengra leyfi þurfa forráðamenn nemenda að hafa samband við skrifstofu skólans eða skólastjórnendur og fylla út þar til gert eyðublað um leyfisumsókn. Hafa þarf þó samráð við umsjónarkennara. Mikilvægt er að foreldrar hafi samráð við kennarana vegna námsframvindu barna sinna. Öll röskun á námi nemenda sem hlýst af umbeðnu leyfi er á ábyrgð forráðamanna.

Forföll nemenda
Tilkynna þarf veikindi og önnur forföll nemenda á skrifstofu skólans eins fljótt og verða má. Mikilvægt er að foreldrar tilkynni forföll vegna veikinda daglega.

Forföll kennara
Þegar forföll kennara verða er reynt í lengstu lög að fá afleysingakennara. Þó getur sú staða komið upp að það takist ekki. Í þeim tilvikum áskiljum við okkur rétt til að senda börn í 5. - 10. bekk heim. Í þeim tilvikum er alltaf athugað hvort nemendur komist inn heima hjá sér.

Óveður og ófærð
Það er foreldra sjálfra að meta það hvort þeir senda börn sín í skólann eða halda þeim heima í óveðrum og ófærð. Einstakir skólar ákveða ekki að fella niður skólahald vegna veðurs. Tilkynning um það gæti þó komið frá Menntasviði Reykjavíkur fyrir alla skóla á þess svæði.

Slys í skóla
Slasist barn í skólanum og þurfi að fara á slysadeild er reynt að ná í foreldri. Því er mikilvægt að í skólanum sé bæði heimasími og vinnusími foreldra. Takist ekki að ná í foreldra sér starfsfólk skólans um að koma barninu á slysadeild.

Óskilamunir
Á hverju ári safnast mikið af óskilafatnaði fyrir í skólanum. Mikilvægt er að allur fatnaður nemenda sé greinilega merktur. Við viljum hvetja foreldra til að koma í skólann og athuga hjá gangavörðum ef föt eða aðrar eigur nemenda hafa týnst. Óskilamunir eru til sýnis á göngum skólans á foreldradögum. Það sem eftir verður er geymt út önnina en síðan afhent Hjálpræðishernum.

Strætómiðar
Um afhendingu strætómiða gilda reglur sem borgaryfirvöld hafa sett: Nemendur sem að eigin ósk sækja skóla utan síns hverfis eiga ekki rétt á ókeypis farmiðum. Þó er heimilt að afhenda þeim nemendum sem flust hafa milli skólahverfa, en óska eftir að sækja sinn fyrri skóla út skólaárið, ókeypis farmiða að hálfu.

Mötuneyti og matartímar
Nemendur 1. – 4. bekkjar geta fengið keyptan hádegismat í mötuneyti skólans. Matseðill er gerður fyrir hvern mánuð og er hann aðgengilegur foreldrum á heimasíðu skólans. Matartími er frá kl. 11:10 fyrir 1. - 4. bekk.  Nemendur sem koma með hádegisnesti matast á sama tíma í matsalnum.
Þeir nemendur sem eru í Frístundaheimili eftir skóla geta fengið síðdegishressingu og greiðist fyrir hana mánaðarlega eins og hádegismatinn.
Mötuneytið afhendir líka mjólk sem nemendur 1.- 2. bekk fá í nestistímanum að morgni. Í nestistímum á morgnana borðar 1.- 4. bekkur í sinni bekkjarstofu.
Umsóknareyðublöð fyrir mötuneytið fást á skrifstofu skólans eða heimasíðu skólans undir flipanum "eyðublöð".

Skólanesti
Æskilegt er að börn matist vel áður en farið er í skólann. Þau börn sem koma svöng til starfa eiga í miklum erfiðleikum með að einbeita sér að uppbyggilegu skólastarfi. Einnig er nauðsynlegt að börnin komi með nesti að heiman til þess að borða í nestistímum. Gott nesti þarf að vera mjólk eða hreinn ávaxtasafi, brauð helst gróft með góðu áleggi, t.d. osti, grænmeti, eggjum, kjöti eða fiskmeti. Gott er einnig að hafa ávexti og grænmeti í nestisboxinu en alls ekki kökur og sætindi. Varast ber þó að hafa of mikið nesti með í nestisstund, svo nemendur hafi góða lyst á hádegismatnum.
Fyrirkomulag á sölu drykkja í skólanum fyrir nemendur í 1. - 4. bekk er þannig að þeir geta keypt létt- eða nýmjólk í áskrift. Drykkirnir eru greiddir fyrirfram í upphafi hvorrar annar og þannig geta foreldrar tryggt að börnin fái drykk á hverjum degi.


Nemendaverndarráð
Hlutverk nemendaverndarráðs er að fjalla um vandamál einstakra nemenda og að finna leiðir til úrbóta fyrir þá.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.


Vináttuverkefnið Mentor
Mentorverkefnið Vinátta er tilrauna- og þróunarverkefni þar sem Kennaraháskóli Íslands, Háskóli Íslands og nokkrir grunnskólar í Reykjavík vinna saman að því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvers annars. Sjá: vinátta.is og Stoðkerfi.

Olweus
Unnið er samkvæmt Olweusarkerfi við meðferð eineltismála í skólanum. Upplýsingar um þetta kerfi er að finna á vefslóðinni www.olweus.is
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

Áfallaráð
Í skólanum starfar áfallaráð sem skipað er skólastjórnendum, sérfræðingum og sóknarpresti. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

Sálfræðingur
Sálfræðingur skólans er Hildur Jónsdóttir. Kennarar og/eða foreldrar barns geta leitað eftir aðstoð sálfræðings.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

Námsráðgjöf
Námsráðgjafi skólans er Begling Salvör Heiðarsdóttir.
Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

Listmeðferð
Listmeðferðarfræðingur Austurbæjarskóla hefur verið Íris Ingvarsdóttir. Hún er í námsleyfi í vetur. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi
.
Heilsugæsla
Hjúkrunarfræðingur skólans heitir Sigrún Björnsdóttir.
Skólalæknir er Ásmundur Magnússon heilsugæslulæknir á Heilsugæslu miðbæjar. Nánari upplýsingar, sjá Stoðkerfi.

Skólahljómsveit
Á vegum skólalúðrasveitar Mið- og Vesturbæjar er kennt á blásturs- og ásláttarhljóðfæri. Nemendur fá að fara úr kennslustundum í einkatíma í hljóðfæraleik eftir skipulagi sem gerir það að verkum að nemandi missir ekki af sömu kennslustund fyrr en að nokkrum vikum liðnum. Best er að byrja 8 -9 ára gamall.
Ætlast er til að nemendur æfi sig reglulega heima hjá sér og mæti á samæfingar í Hljómskálanum einu sinni í viku. Sum hljóðfæri eru vinsælli en önnur og óvíst hvort hægt er að verða við óskum allra í því sambandi.

Skólabókasafn
Starfsmenn bókasafnsins eru Inga Lára Birgisdóttir, bókasafnsfræðingur og Maria Riska. Nánari upplýsingar, sjá nánar undir Skólinn.

Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 19 ágúst 2010 15:40
 
midlogo