gototopgototop

jausturbaer

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Skólahúsnæði Prenta Senda tengil
Rýmingaráætlun Austurbæjarskóla

Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang skal unnið eftir eftirfarandi rýmingaráætlun.


Umsjónarmaður eða staðgenglar hans bregðast strax við og fara að stjórntöflu brunaviðvörunarkerfis og kanna hvaðan brunaboðið kemur. Kennarar undirbúa rýmingu kennslustofunnar og fara eftir ákveðnum leiðbeiningum sem eru að finna í öllum kennslustofum. Teikningar af útgönguleiðum eru í kennslustofum og á göngum skólans. Nemendur yfirgefa ekki kennslustofu fyrr en kennari hefur kannað hvort útgönguleiðin sé greið. Hver kennari er ábyrgur fyrir þeim bekk/hópi sem hann er að kenna þegar hættuástand skapast og þegar stofan er yfirgefin þarf hann að muna eftir nafnalistanum. Ætíð skal velja þann neyðarútgang sem er næstur. Skólaritari hefur samband við slökkviliðið í síma 112, tilkynnir um eld eða gefur skýringar á brunaboðinu. Ef um falsboð er að ræða er slökkt á brunavælum sem gefur til kynna að hættuástan sé liðið hjá. Þegar komið er út á söfnunarsvæðin er mjög mikilvægt að nemendur standi í röð hjá sínum kennara sem fer yfir nafnalistann og kannar hvort allir séu komnir út. Kennari kemur síðan upplýsingum um stöðuna til umsjónarmanns söfnunarsvæðis. Umsjónarmenn söfnunarsvæða koma upplýsingum um stöðuna til skóla
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 19 júní 2008 12:50
 
midlogo