|
Stefna skólans - Skólareglur - Jafnréttisáætlun
Stefna skólans
Stefna skólans tekur mið af lögum, reglugerðum, alþjóðasamþykktum, stefnu Reykjavíkurborgar í fræðslumálum og félagslegu umhverfi skólans. Öllum skal tryggt jafnrétti til náms án tillits til kyns, þjóðernis, stéttar, stöðu og trúarbragða.
Austurbæjarskóli er fjölmenningarlegur skóli þar sem 20% nemenda eru af erlendum uppruna, af 30 mismunandi þjóðernum. Austurbæjarskóli er skóli án aðgreiningar. Í því felst að skólastarfið er lagað að þörfum allra nemenda.
Skólinn er móðurskóli í fjölmenningarlegri kennslu og gegnir forystuhlutverki á því sviði í Reykjavík. Í skólanum er lögð áhersla á sjálfsagðan fjölbreytileika fólks sem endurspeglast i öllum bekkjum. Börn eru af ólíku kyni, koma frá ólíkum fjölskyldum, þau hafa ólík viðhorf, ólík áhugamál og mismunandi hæfileika. Markmið fjölmenningarlegrar kennslu er að nemendur læri að virða fjölbreytileikann og lögð er áhersla á að nýta hann á jákvæðan hátt.
Til að ná þessum markmiðum er skólinn að þróa kennsluaðferðir sem leggja áherslu á samvinnu nemenda, að hver nemandi hefur sinn styrkleika, að hver og einn sé virtur á eigin forsendum og að hæfileikar allra nýtist hópnum. Kennarar skulu beita fjölbreyttum kennsluháttum með það að markmiði að nemendur verði virkir í kennslustundum og fái notið hæfileika sinna.
Skólareglur
1. Við sýnum hvert öðru kurteisi og tillitsemi 2. Við höfnum einelti og ofbeldi í sérhverri mynd 3.Við metum kosti hvers annars og höfnum fordómum 4. Við erum stundvís og göngum vel um skólann okkar og eigur hans 5. Við höfnum vímuefnum og leyfum ekki neyslu áfengis eða reykingar í skólanum 6. Við veljum heilbrigða lifnaðarhætti og erum ekki með gos eða sælgæti í skólanum á skólatíma 7. Við sýnum aðgæslu og leyfum ekki notkun reiðhjóla, hjólabretta eða línuskauta í skólanum á skólatíma 8. Við setjum bekkjarreglur og fylgjum þeim á sama hátt og skólareglunum 9. Þeir sem brjóta reglurnar fá áminningu eða refsingu, sem ákveðin er af skólastjórnendum eða á formlegum bekkjarfundum
Jafnréttisáætlun Austurbæjarskóla
1. Skólinn. 1.1 Skólinn er fjölmenningarlegur, án aðgreiningar og leggur áherslu á sjálfsagðan fjölbreytileika fólks, virðingu, vinsemd og vellíðan allra nemenda og starfsmanna og fjölbreytta kennsluhætti. 1.2. Lögð er áhersla á mikilvægi einstaklingsins og það sem fólk á sameiginlegt fremur en það sem aðgreinir. 1.3. Skólinn vinnur eftir Olweus – aðgerðaáætlun gegn einelti. 1. 4. Áfallaráð starfar í skólanum og skilgreindar eru leiðir til að taka á vanda sem upp kemur.
2. Markmið Jafnréttisáætlun Austurbæjarskóla á að tryggja að allir nemendur og allt starfsfólk eigi jafnan rétt og beri jafnar skyldur og að einstaklingum sé ekki mismunað. Hver einstaklingur er metinn á eigin forsendum án tillits til uppruna, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu.
3. Leiðir 3.1. Jafnréttissjónarmið eru samofin stefnu skólans, öll vinna og öll samskipti taka mið af þeim. Þau eiga að koma fram í skólanámskrá og allri áætlanagerð. 3.2 Markvisst er unnið með jafnrétti í lífsleiknitímum og fræðslan byggð upp og samþætt öðru námi frá 1. – 10. bekkjar. Í símenntun starfsfólks er jafnréttis- og fordómafræðsla og jafnrétti er í heiðri haft í daglegum samskiptum. 3.3. Markvisst er unnið í anda fjölmenningar gegn fordómum, stöðluðum kynímyndum og öðrum staðalímyndum. Sjá stefnu skólans. 3.4. Kynferðisleg áreitni og einelti eru ekki liðin. Komi þau mál upp fara þau í ákveðinn farveg. Sjá áfallaráð og eineltisteymi. 3.5. Jafnréttisáætlunin er kynnt á hverju ári fyrir nemendum og starfsmönnum og foreldrum. Hún er uppfærð árlega á heimasíðu skólans.
4. Nemendur.
4.1. Við skipulag bekkja og námshópa er miðað við að kynjahlutfall sé sem jafnast og hlutfall erlendra nemenda sé sem jafnast milli bekkja. Sama gildir um embætti, nefndir og ráð á vegum skólans. 4.2. Námsframboð og viðfangsefni eiga að höfða til beggja kynja og jafnréttis er gætt í kynbundnu námsframboði. 4.3. Nemendur af báðum kynjum og öllum þjóðernum fá kynningu á framhaldsmenntun og störfum í þjóðfélaginu og eru hvattir til að kynna sér svonefnd hefðbundin kvenna- eða karlastörf. Námsráðgjafi skipuleggur þá fræðslu. 4.4. Þegar kosið er í nemendaráð, valið í hópa sem koma fram fyrir hönd skólans s.s. á íþróttamótum og öðrum keppnismótum, í félagslífi o.þ.h. á hver hópur að vera sem fjölbreytilegastur og hlutfall kynja sem jafnast. 4.5. Viðhorfskannanir og foreldraviðtöl eru notuð til að kanna líðan og gengi nemenda og m.a. með tilliti til jafnréttis. Niðurstöður Olweuskannana eru kynbundnar og einnig félagstengslakannanir og áhugasviðskannanir sem námsráðgjafi skipuleggur. 4.6. Skólinn tekur tillit til sérstakra aðstæðna nemenda vegna skólasóknar.
5. Kennsla. 5.1. Kennarar skólans skoða og meta allt námsefni út frá jafnréttissjónarmiði. Skipuleg, jafnréttismiðuð skönnun námsefnis er alltaf á dagskrá út frá fjölmenningarlegum áherslum skólans. 5.2. Það er stefna skólans að nota sem fjölbreyttasta kennsluhætti til að ólík reynsla og gildismat nemenda fái sem best notið sín. Fjölmenningarlegt samvinnunám hefur verið í brennidepli undanfarin ár og þjálfun í samskiptahæfni þar sem tillitsemi og virðing eru lykilorð. 5.3. Námsárangur beggja kynja er skoðaður og borinn saman. Sé þar marktækur munur á er leitast við að finna orsakir þess og leiðir til úrbóta.
6. Starfsmenn. 6.1. Stefnt er að því að kynjahlutfall í starfsmannahópnum sé sem jafnast. 6.2. Starfsauglýsingar eru í anda jafnréttislaga. 6.3. Konur og karlar njóta sömu launakjara og hafa jafna möguleika á launuðum aukastörfum innan skólans. 6.4. Starfsfólki eru tryggðir möguleikar til endurmenntunar og starfsþróunar, óháð kyni. 6.5.Vinnuaðstaða tekur mið af þörfum beggja kynja. Við úthlutun verkefna er þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. 6.6. Skólinn gerir starfsfólki sínu kleift að samræma störf sín og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða öðru fyrirkomulagi eftir því sem við verður komið. 6.7. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna eru virkur þáttur í starfsmannastefnu skólans. 6.8. Viðhorfskannanir og starfsmannaviðtöl eru notuð til að kanna líðan og skoðanir starfsmanna m.a. með tilliti til jafnréttis.
|